Glerið sem vissi allt og Handan fötunnar eru nú á vefnum, bæði fyrir fólk og vélar.
Glerið sem vissi allt og Handan fötunnar eru komin á vefinn sem texti. Rýnið í þá með ykkar eigin mállíkani og sendið mér gagnrýnina.
Ég skrifaði dæmisögu um gler sem geymir alla þekkingu mannkyns og um fólk á strönd sem hættir smám saman að leita svara sjálft. Sagan kom út sem lítil myndskreytt bók þar sem hver síða er mynd. Textinn sjálfur var því hvergi til sem texti.
Nú er hann það. Undir bókinni á síðunni er hnappur sem opnar alla söguna, og hún er líka til sem hrein markdown-skrá á íslensku, ensku og ítölsku.
Á vefnum er nú líka ritgerðin Handan fötunnar. Þar set ég spurningu sögunnar í samhengi við menntun: hvað þarf skólinn að verja þegar það sem nemandinn skilar sýnir ekki lengur hvað hann kann? Svar mitt er að menntun hafi tvíþætt hlutverk. Hún þarf að gera fólk fært um að meta það sem vélin réttir því, og hún þarf að gera það fært um að finna svörin sjálft. Ritgerðin er líka til á ensku undir heitinu Beyond the Bucket.
Mig langar að biðja ykkur um eitt. Veljið annan textann eða báða og látið mállíkanið sem þið notið rýna í hann. Biðjið það að benda á veikustu rökin, á það sem vantar og á staði þar sem heimildirnar virðast ekki styðja það sem sagt er. Um söguna má spyrja hvort hún skýri viðfangsefnið eða einfaldi það um of. Berið svo svörin sjálf saman við textann og metið hvort þau standast.
Með þessu prófa ég meginhugmynd ritgerðarinnar á henni sjálfri. Vélin getur rétt okkur svar, en við þurfum sjálf að meta hvort það stenst. Ábendingar sem verða til án nokkurrar vélar eru auðvitað jafn vel þegnar.
Textarnir eru hér sem vefsíður og hreinar markdown-skrár:
Ef þið finnið villu, veik rök eða eitthvað sem þið eruð ósammála, sendið mér stutta ábendingu á magnus hjá smarason.is. Vitnið gjarnan í staðinn í textanum og segið hvað ykkur finnst vanta. Ég les allt sem berst.

Ég settist í Morgunvaktina á Rás 1 um dönsku lokaprófin, þægindavæðingu og gervigreind í skólum. Einkunnafall er einkenni, ekki orsök — og hliðið var aldrei til.

Eyjólfur Guðmundsson — fyrrverandi rektor, hagfræðingur úr leikjaheiminum — settist niður með mér og við enduðum á sömu niðurstöðu: þetta snýst ekki um tæknina, heldur hvað við setjum í hana og hvernig við stýrum henni.

Samtal við Pietro Segreto, doktorsnema við Tor Vergata í Róm, um útgáfu, þekkingu og gervigreind. Útgefendur sem hliðverðir þekkingar; LLM sem skuggi; glerkassinn frá 1423 — og fatan sem hver kynslóð fyllir. (Samtalið fer fram á ensku.)