Íslenskt mállíkan sem les skjal og merkir hvert atriði samkvæmt persónuverndarlögum
Vör er íslenskt mállíkan sem les skjal og merkir hvert atriði persónuupplýsinga samkvæmt lögum nr. 90/2018. Hún er opin á Hugging Face, ásamt Norn v4.
AIÍ síðustu viku fékk ég lánaða DGX Spark frá Nvidia til prófunar. Skjákortið í henni hefur aðgang að öllum 121 GB minnisins, og það dugar til að þjálfa líkan með 31 milljarði stika á einni borðtölvu. Ég lét hana vinna í fjóra sólarhringa.
Út komu tvö líkön, bæði byggð á Gemma 4 frá Google. Norn v4 er almennt íslenskt líkan sem beygir orð rétt í 86% tilvika á prófi úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. Grunnlíkanið nær 70%. Hitt líkanið heitir Vör og gerir aðeins eitt. Það les íslenskan texta og finnur allar persónuupplýsingar í honum.
Vör merkir hvert atriði með tegund og lagagrunni. Nafn og kennitala eru almennar persónuupplýsingar samkvæmt 3. gr. laga nr. 90/2018. Heilsufar, stéttarfélagsaðild og trúarskoðanir eru viðkvæmar. Sakaskrá og fjárhagsupplýsingar fá sína flokka. Að lokum segir hún hvort skjalið í heild sé viðkvæmt.
Á 317 prófskjölum fann Vör 98,7% allra persónuupplýsinga og 99,7% beinna auðkenna. Ég prófaði líka nöfn sem hún sá aldrei í þjálfun, og þar fann hún 324 af 327. Hún lærði því að þekkja nöfn en lagði þau ekki á minnið.
Prófskjölin eru þó gerviskjöl, eins og öll gögnin sem hún lærði af, og engin raunveruleg manneskja kemur fyrir í þeim. Næsta skref er að yfirfara hundrað skjöl handvirkt og prófa hana síðan á raunskjölum. Hún er líka veikari á stökum setningum en heilum skjölum, og sakaskrá er sá flokkur sem hún finnur síst.
Bæði líkönin eru opin á Hugging Face og keyra í Ollama á vél með stóru skjákorti (24 GB eða meira).
Nafnið er fengið úr Gylfaginningu, þar sem Vör er ein ásynjanna. „Hon er ok vitr ok spurul, svá at engi hlutr má hana leyna.“

Í tillögu að mannlegri stjórnarskrá fyrir gervigreind byggir Arif Jameel á Palermo-kaflanum mínum og tekur mögnunargjána inn í grein sína um samþjöppun valds.

Í síðustu viku lét Þýskaland verða að því sem flest Evrópuríki hafa rætt um í áratugi en ekkert hefur þorað að framkvæma: Að gera opna skjalasniðið ODF (Open Document Format) að fortakslausri kröfu í allri opinberri stjórnsýslu. Ekki sem tilraun. Ekki sem tillögu. Heldur sem skilyrði, innbyggt í Deutschland-Stack — rammann sem skilgreinir stafræna innviði þýska ríkisins.

Ef það telst stjórnsýsluleg vanræksla að nota Claude til að dæma framlag fræðafólks, hvers vegna telst það þá „fræðilegur heiðarleiki“ að nota Turnitin til að dæma frumleika nemanda?