Arif Jameel byggir á Palermo-kaflanum mínum
Í tillögu að mannlegri stjórnarskrá fyrir gervigreind byggir Arif Jameel á Palermo-kaflanum mínum og tekur mögnunargjána inn í grein sína um samþjöppun valds.
AIArif Jameel er sjálfstæður fræðimaður í Lahore. Í september sendi hann frá sér tillögu að því sem hann kallar mannlega stjórnarskrá fyrir gervigreind, „We the Living Generation“: The Ceteris Paribus Law. Fyrirtækin setja eigin kerfum sínum stjórnarskrá, en engin almennt bindandi lágmarksvörn nær yfir öll gervigreindarkerfi og lögsagnarumdæmi. Jameel leggur til inngang og tíu greinar sem slíkt lágmark.
Í kafla 4.5 byggir hann á kaflanum mínum úr Palermo-ritinu, In the Shadow of the Machine: The Order of Magnitude Year. Hann segir greininguna styrkja reynslugrunn laganna og kallar hana „a significant contemporary foundation for the present theory“.
Það sem hann tekur sérstaklega upp er mögnunargjáin. Þegar geta vex í stærðargráðum snýst ójöfnuður ekki lengur aðeins um tekjur. Hann snýst um það hver getur komið hlutum í verk. Jameel segir að hugtakið gefi áttundu grein hans, um samþjöppun valds í gervigreind, „a concrete, named mechanism“.
Mér þykir vænt um þetta af einni ástæðu. Ritgerðin var skrifuð innan úr verkinu, í lok árs þegar mælikvarðarnir hættu að virka, og hún endaði á spurningu frekar en svari. Nú hefur einhver hinum megin á hnettinum tekið spurninguna og byggt á henni. Til þess skrifar maður.
Ég hef bætt mögnunargjánni við hugtökin á rannsóknarsíðunni.

Vör er íslenskt mállíkan sem les skjal og merkir persónuupplýsingar samkvæmt lögum nr. 90/2018. Hún er opin á Hugging Face, ásamt Norn v4.

Þann 18. mars 2026 samþykkti upplýsingatækniráð Þýskalands staðla, þar á meðal ODF (Open Document Format), sem bindandi grunn lausna innan Deutschland-Stack. Ákvörðunin tekur til þess ramma; hún er ekki almenn krafa um að öll skjöl opinberrar stjórnsýslu séu á ODF-sniði.

Ef það telst stjórnsýsluleg vanræksla að nota Claude til að dæma framlag fræðafólks, hvers vegna telst það þá „fræðilegur heiðarleiki“ að nota Turnitin til að dæma frumleika nemanda?