Red Box
Fréttabréf sem erindrekakerfi vinnur — ég stýri veiðinni
Erindrekar safna fréttunum, sía þær og endurskrifa, ég stýri veiðinni. Þétt fréttabréf sem kemur út reglulega, og kerfið sjálft er opið.

Fréttabréfið á þessari síðu er sjálft tilraun. Spurningin: getur erindrekakerfi séð um veiðina — safnað því helsta úr tækniheiminum, síað suðið frá og endurskrifað það sem skiptir máli í þétt bréf — án þess að mannshöndin sleppi stýrinu?
Red Box er svarið eins og það stendur í dag. Erindrekarnir safna og skrifa; ég stýri veiðinni og ber ábyrgð á því sem birtist. Útkoman er þétt fréttabréf sem kemur út reglulega, „merki vikunnar" á fréttasíðunni — og opið kerfi sem hver sem er getur skoðað á GitHub.
Sama lögmál og annars staðar í smiðjunni: vélin magnar, mannshöndin ákveður.
Tæknistaflinn
Tengd verkefni
Sjá öll verkefni →
BORG
Öruggur og samþættur gervigreindarvettvangur Háskólans á Akureyri. Sameinar ytri gervigreindarþjónustur og öfluga vinnslugetu innanhúss til að tryggja gagnafullveldi háskólans.

Smarason.is
Persónuvefur fluttur heim: Next.js 16 + Payload á eigin Hetzner-jaðarvél með Caddy, engin skýjaefnisveita, ekkert eftirlit. Arkitektúrinn er hugmyndafræðin — fullveldi yfir eigin gögnum.

Sumarhús
Eigin innviðir og erindrekasamfélag: eigin vélar, eigin gögn, eigið efni. Erindrekarnir vinna verkin, mannshöndin ákveður.