Fara beint í efni

Þjónusta

Innviðir, stjórnun og uppbygging getu

Ég starfa á mótum stjórnsýslu og hugbúnaðargerðar. Megináherslan er á að byggja gervigreindarinnviði sem eru tæknilega sjálfstæðir, skilja íslenskt samhengi og uppfylla kröfur um persónuvernd og öryggi.

Við Háskólann á Akureyri hef ég leitt vinnu við fyrstu heildstæðu gervigreindarstefnu háskóla á Íslandi og stýrt smíði framleiðslukerfa eins og BORG og Arctic Tracker. Sú vinna byggir á þeirri sannfæringu að stefnumótun sé marklaus án tæknilegrar getu til að framfylgja henni.

Hér að neðan er yfirlit yfir þá aðferðafræði og þjónustu sem ég býð upp á fyrir stofnanir og fyrirtæki sem vilja byggja á eigin forsendum.

Aðferðafræði og arkitektúr

Kerfin sem ég byggi fylgja fjórum hönnunarreglum.

Óháð birgjum

Innviðirnir eru hannaðir þannig að hægt sé að skipta um tungumálalíkan án þess að endurbyggja kerfið. Þetta dregur úr áhættu ef birgjar breyta skilmálum eða verðlagningu.

Íslenskt mál- og menningarlæsi

Kerfin nota sérsniðin fyrirmæli og RAG (Retrieval Augmented Generation) til að vinna á íslensku með blæbrigðum sem skipta máli í stjórnsýslu.

Sjálfsforræði gagna

Viðkvæm gögn og ákvarðanatökuferlar eru á innviðum sem stofnunin stjórnar sjálf.

Gagnsæi í hönnun

Hvert kerfi er skjalað þannig að tækniteymi geti rakið hvernig niðurstaða var fengin. Forsenda ábyrgðar á úttaki kerfisins.

Sönnunin er í arkitektúrnum

Sumarhús Alpha v2.4

Virkt

Ég sel ekki kenningar. Ég sel kerfin sem ég bý í. Þetta er arkitektúr eigin innviða minna, sem stjórnar öllu frá rannsóknum til hitastýringar heima. Sjálfhýst, fullvalda og skjalað niður á kóðalínu.

Cloud APIs

Anthropic

Claude Opus 4.6

Google

Gemini

OpenRouter

Fjöllíkön

HTTPS
MacBook Pro

PAI stjórnstöð

Claude CodeCursorMemorySkillsAgents
TAILSCALE MESH

Innviðir

Hercules

GPU tölvun

RTX 5090RTX 4090LiteLLMOllama
Proxmox

Sýndarvélastjóri

VM MgmtBackups
Docker VM

Gámahýsing

Mission CtrlInfluxDBGrafanan8n
PocketBase

Gagnagrunnur + API

Daily LogAgent Msg
S7COMM · MQTT

Staðarnet · IoT

S7-1200 PLC

Heitpottsstýring

S7comm
Home Assistant

Snjallt heimili

MQTT

Þegar ég byggi fyrir þig, koma sömu kröfur til framkvæmda.

Afhending

Öll verkefni enda með afhendingu til stofnunarinnar. Markmiðið er að innra teymið geti rekið kerfið sjálfstætt.

Afhendingarpakkinn inniheldur:

  • ArkitektúrskjölunTæknileg yfirferð sem gerir innanhúss forriturum kleift að taka við viðhaldi og þróun.
  • StýrireglurKerfisfyrirmæli sem stýra hegðun líkansins, afhent sem opinn texti.
  • RekstrarhandbókLeiðbeiningar um uppfærslur, kostnaðarstýringu og gæðaeftirlit.

Opinberar stofnanir

Greining og stefnumótun

Kortlagning á núverandi stöðu stofnunarinnar gagnvart gervigreind. Ábyrgðarskipting, háðir ferlar og samræmi við lög.

  • Kortlagning á núverandi notkun og skuggagervigreind (Shadow AI)
  • Áhættumat byggt á væntanlegri ESB gervigreindarreglugerð
  • Gerð framkvæmanlegrar gervigreindarstefnu

Ráðuneyti, háskólar og opinberar stofnanir.

Stjórnunarrammar

ESB gervigreindarreglugerðin gerir kröfu um að stofnanir hafi stjórn á sínum kerfum. Ég aðstoða við uppsetningu stjórnunarferla.

  • Innleiðing á BORG stjórnunarrammanum
  • Undirbúningur fyrir kröfur um hááhættukerfi
  • Hönnun eftirlitsferla með sjálfvirkri ákvarðanatöku

Stjórnendur sem bera ábyrgð á fylgni við reglugerðir.

Fyrirtæki

Gervigreindarinnviðir fyrir fyrirtæki sem vilja eiga kerfin sín og vernda hugverkarétt.

  • Staðbundin gervigreindarmódel til verndar viðkvæmum gögnum
  • Sjálfvirkni í verkferlum (Agentic Workflows)
  • API-tengingar óháðar einstökum birgjum

Þjálfun og menntun

Vinnustofur og námskeið

Verkleg námskeið fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Hvernig tæknin virkar, hvar hún bregst og hvernig á að stýra henni.

    Á íslensku eða ensku.

    Leiðsögn fyrir teymi

    Vinna með lykilstarfsmönnum að uppsetningu verkferla og þróun eigin lausna.

      Tækniteymi og millistjórnendur.

      Fyrirlestrar

      Fyrirlestrar um gervigreind, siðfræði hennar og samfélagsleg áhrif.

      Dæmi um efni:

      Ábyrgðarþoka

      Hvernig sjálfvirkni dreifir ábyrgð þannig að enginn virðist bera hana.

      Vitsmunaskuld

      Hvað gerist þegar við útvistum dómgreind til kerfa sem við skiljum ekki.

      Fjárfestingarbilið

      Misræmið milli þess sem fjárfestar vilja (AGI) og þess sem fyrirtæki þurfa (áreiðanleg sjálfvirkni).

      Tæknilegt fullveldi

      Af hverju við þurfum að eiga innviðina okkar í stafrænum heimi.

      Fyrirlestrar eru sérsniðnir að hverjum viðburði.

      Opin þekking

      Grunnþekking á gervigreind á ekki að vera falin bak við greiðsluveggi. Ég lít á það sem skyldu rannsakanda að miðla þekkingu um áhrif og virkni þessarar tækni til almennings.

      Því held ég úti hlaðvarpi, skrifa greinar og birti kennsluefni opið. Það sem ég sel er sérfræðivinna við uppbyggingu flókinna kerfa, ekki aðgangur að almennum upplýsingum.

      Sá sem skilur tæknina er betur í stakk búinn til að taka upplýstar ákvarðanir. Það er forsenda lýðræðis í tæknivæddu samfélagi.

      Bakgrunnur

      Ég er í fullu starfi og tek þátt í mörgum verkefnum samhliða. Þetta er bakgrunnurinn sem ég ber með mér.

      • Kennari og fyrirlesari við Oxford Lifelong Learning — gervigreindarverkfræði og lágkóða gagnavísindi
      • Meðhöfundur, The Irreducible Human: Life, Value, and Meaning in the Age of AI (Brill)
      • MA ritgerð: Beyond Fragmentation: A Life-Value Alternative for AI Governance
      • Nefndarmaður í matsráði Rannís
      • Höfundur fyrstu heildstæðu gervigreindarstefnu háskóla á Íslandi
      • Erdos Research Fellowship (ERF.ai)
      • Smiður BORG (gervigreindarstjórnunarkerfi), Arctic Tracker (náttúruverndargreiningar, 473.000+ CITES skrár) og Gjöll (brunaöryggiskerfi)
      • Fyrirlesari á Jafnréttisdögum 2026
      • Þáttastjórnandi, Temjum tæknina hlaðvarp
      • Fyrri ferill: 16 ár í bráðaþjónustu

      Ef þú stendur frammi fyrir áskorunum sem tengjast gervigreind — hvort sem þær snúa að stefnumótun, stjórnun eða innviðum — og hefur áhuga á samtali, heyrðist gjarna.